Skítsama um hvað öðrum finnst

Heiða á kynningarmynd fyrir Stellu Blómkvist II.
Heiða á kynningarmynd fyrir Stellu Blómkvist II.

Ný þáttaröð um Stellu Blómkvist, Stella Blómkvist II, verður aðgengileg í Sjónvarpi Símans Premium í dag, 30. september, en sú fyrsta hlaut góðar viðtökur þegar hún var sýnd haustið 2016. Þættirnir eru byggðir á bókum hulduhöfundarins sem kallar sig Stellu Blómkvist og segja af andhetjunni, tálkvendinu og lögfræðingnum Stellu sem tekur að sér snúin mál þar sem hún sér möguleika á að uppræta spillingu og glæpi hjá einstaklingum í valdastöðum, eins og segir á vef Símans.

Sem fyrr leikur Heiða Rún Sigurðardóttir Stellu en hún gengur erlendis undir nafninu Heiða Reed og hefur gert það gott bæði í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum. Fór hún lengi vel með eitt af aðalhlutverkum ensku þáttanna Poldark og þegar blaðamaður nær tali af henni er hún stödd í Búdapest í Ungverjalandi þar sem tökur fara fram á bandarísku þáttunum FBI: International. Þættirnir eru svokallaðir „spin-off“ þættir eða afleggjari af FBI-þáttaröðunum sem hófu göngu sína árið 2018 og segir Heiða að hún fái það besta af hvoru tveggja; fái að leika í bandarískum þætti og í Evrópu. „Það er miklu auðveldara fyrir mig,“ segir hún um þetta fyrirkomulag en heimili hennar er í London og auðvelt að fljúga á milli Bretlands og Ungverjalands. Heiða leikur FBI-konuna Jamie Kellett sem glímir við FBI-mál á erlendri grundu með teymi sínu. Eitt mál er tekið fyrir í hverjum þætti og var sá fyrsti frumsýndur 21. september.

Sogast aftur inn í hringiðu glæpa og stjórnmála

Stella Blómkvist II hefst tveimur árum eftir örlagaríka atburði í stjórnarráðinu þar sem lögfræðingurinn Stella hjálpaði Dagbjörtu Konráðsdóttur, sem nú er orðin forsætisráðherra, við að koma þáverandi forsætisráðherra frá. Stella er enn í harki sem lögfræðingur og við blasir gjörbreytt Ísland, svo vitnað sé í lýsingu á þáttaröðinni á vef Símans. Líkt og í fyrri þáttaröð þarf Stella að leysa þrjú ólík mál með aðstoð vina sinna Gunnu og Ragga og sogast hún aftur inn í hringiðu glæpa og stjórnmála þar sem hún neyðist til að takast á við hættulegri og samviskulausari andstæðinga en hún hefur áður kynnst.

Heiða og Óskar Þór Axelsson í tökum á Stellu Blómkvist …
Heiða og Óskar Þór Axelsson í tökum á Stellu Blómkvist II. Ljósmynd/Saga Sig.

Þættirnir eru sex talsins og með önnur helstu hlutverk fara Krístín Þóra Haraldsdóttir, Þorsteinn Guðmundsson, Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Edda Björgvinsdóttir, Saga Garðarsdóttir og Halldór Gylfason. Leikstjórar eru Óskar Þór Axelsson og Þóra Hilmarsdóttir og handritið var skrifað af Jóhanni Ævari Grímssyni, Snjólaugu Lúðvíksdóttur, Dóru Jóhannsdóttur og Jónasi Margeiri Ingólfssyni.

Heiða segir Stellu enn sára yfir því að hafa verið notuð af Dagbjörtu sem Sara Dögg leikur. „Nú hittum við Stellu í annarri seríu og hún er búin að breyta aðeins til, flytja og lita á sér hárið en fyrrverandi kærasta hennar er ennþá forsætisráðherra og með dálítinn einræðisherrastíl,“ segir hún.

Fær ekki samviskubit

–Stella drekkur viskí og reykir vindla í bókunum og er dálítið sérstök í hegðun og framkomu. Hvernig nálgastu hana og hvað myndir þú segja að þið eigið sameiginlegt?

„Ég myndi segja að ég sé líka svolítill nautnaseggur þannig að það er gaman að leika einhvern sem leyfir sér hlutina og er aldrei með samviskubit yfir því. Ég fæ alveg samviskubit stundum en hún er með miklu fínni smekk en ég, hún er ekkert að sturta í sig M&M og Coca Cola, hún er með rándýrt súkkulaði og Kobe-steik, það besta af öllu. Hún er þannig með allt, húsgögn og list og eyðir peningunum í fallega hluti sem hún getur notið af því að hún er ekki með nein alvöru persónuleg sambönd. Þetta er það sem henni þykir vænt um,“ segir Heiða kímin og bætir við að ef til vill sé það dálítið sorglegt.

–Þetta er mjög sterkur karakter og kraftmikill, er það ekki?

„Jú, henni er í rauninni bara skítsama um hvað öðrum finnst og það er mjög frelsandi að fá að stíga inn í þannig persónu.“

–Hún lendir ansi oft í hættulegum aðstæðum...

„Já, það er það óþægilegasta við hana, það er alltaf verið að ræna henni og tuska hana til, kefla hana og svoleiðis sem getur verið svolítið óþægilegt,“ svarar Heiða kímin.

Höfundur ábyggilega karl

–Þú hefur væntanlega lesið bækur Stellu Blómkvist áður en þú lékst í fyrri seríunni og eins og þú þekkir er umdeilt hvort höfundurinn er karl eða kona. Hvort heldur þú að hann sé?

„Ég held alveg 100% að hann sé karl,“ svarar Heiða að bragði. „Hún er skrifuð eins og karlmaður hafi skrifað hana,“ útskýrir hún, „og ég fíla það samt alveg. Það er svona gaur í henni, svolítið frekur karl. Ég er ekki að segja að kona gæti ekki skrifað konu þannig en mér finnst fílingurinn dálítið þannig. Mér finnst eins og karlmaður hafi skrifað hana og hugsað hvernig hann væri ef hann væri kona.“

–Íslenskt samfélag í bókunum er samfélag spillingar og klíkuskapar. Hversu raunsönn heldurðu að sú mynd sé af íslensku samfélagi?

„Það er náttúrlega sannleikur í öllum sögum,“ segir Heiða og að líklega sé alltaf leitað fanga í sönnum aðstæðum. „Allt í heimi Stellu er svakalega ýkt og við tökum okkur það leyfi að hafa svolítið gaman af því og vera ekki að biðjast afsökunar á neinu.“

Heiða verður áfram við tökur á FBI: International fram á vor og segir hún ekkert ákveðið með næstu verkefni. „Þetta er svo langt ferli að það er í rauninni ekki hægt að segja hvað kemur á eftir, alla vega hjá mér sem leikkonu en ég er með nokkra hluti í bígerð sem ég skrifaði og leikstýrði þannig að við sjáum til með hvað kemur út úr þeim þegar þeir eru tilbúnir.“

Hér má sjá stiklu fyrir Stellu Blómkvist II:

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg