Mjög pirruð út í Affleck

Jennifer Lopez er sögð ósátt með ummæli Bens Afflecks.
Jennifer Lopez er sögð ósátt með ummæli Bens Afflecks. AFP

Söng- og leikkonan Jennifer Lopez er sögð allt annað en sátt með kærastann sinn, leikarann Ben Affleck, eftir nýlegt viðtal hans. Margir túlkuðu viðtal Afflecks, sem er óvirkur alkóhólisti, þannig að hann kenndi fyrrverandi eiginkonu sinni, Jennifer Garner, um drykkju sína í hjónabandi þeirra. 

„Við reynd­um að halda hjóna­band­inu gang­andi vegna þess að við eig­um börn sam­an. Mér fannst ég svo­lítið fast­ur. Ef við hefðum ekki skilið væri ég lík­lega enn að drekka,“ er haft eft­ir Aff­leck. Affleck og Garner tilkynntu skilnað árið 2015 en skildu formlega árið 2018. 

Heimildarmenn Page Six sem þekkja til Jennifer Lopez segja að hún sé ósátt við ummæli Afflecks. „[Lopez] er mjög pirruð,“ sagði heimildarmaður. „Hún er dregin inn í þetta af því hún er að hitta hann. Hún vill ekki vera dregin inn í þetta.“

Affleck reyndi að koma orðum sínum betur til skila í þætti Jimmys Kimmels í gær. „Ég myndi aldrei vilja að börnin mín héldu að ég segði eitthvað slæmt um móður þeirra,“ sagði Affleck í þætti Kimmels. Affleck var ánægður með viðtalið þangað til hann sá fréttirnar upp úr því og hvernig þær voru slitnar úr samhengi að hans mati. 

Lopez og Affleck byrjuðu saman fyrr á þessu ári en þau voru einnig saman í byrjun aldarinnar. Lepez er sögð vera að reyna að kynnast fyrrverandi eiginkonu Afflecks, leikkonunni Jennifer Garner, og börnum þeirra þremur. Heimildarmaðurinn bendir á að orð Afflecks hafi verið tillitslaus. 



Jennifer Garner og Ben Affleck voru gift og eiga þrjú …
Jennifer Garner og Ben Affleck voru gift og eiga þrjú börn saman. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú átt vont með að losna við tiltekna hugmynd úr kollinum þessa dagana. Mundu að ekkert er þess virði að missa heilsuna fyrir það.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú átt vont með að losna við tiltekna hugmynd úr kollinum þessa dagana. Mundu að ekkert er þess virði að missa heilsuna fyrir það.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir