Stuðboltarnir Siggi Gunnars og Eva Ruza stýra sannkallaðri fjölskylduskemmtun hér á mbl.is þegar þau færa landsmönnum rjúkandi heitar bingótölur beint heim í stofu. Í kvöld verður sumarstemning í bingósettinu þar sem einn heppinn bingóspilari getur átt von á því að vinna flugsæti til Kanaríeyja með Úrvali Útsýn fyrir sig og fjölskylduna.
Sérstakur gestur kvöldsins er ungstirnið Katla sem er einn þátttakenda í Söngvakeppni Sjónvarpsins sem er í fullum gangi þessa dagana.
Tryggðu þér bingóspjald, hentu þér í Havaí-skyrtuna, settu upp sólgleraugun og taktu suðræðna sveiflu með Sigga Gunnars og Evu Ruzu í kvöld. Það er ekkert nema bjart framundan!
Upplýsingar um vinninga, leikreglur, bingóspjöld og útsendinguna sjálfa má nálgast með því að smella hér. Einnig er hægt að horfa á beina útsendingu á rás 9 hjá Sjónvarpi Símans.