Dómnefndir Evrópuríkja voru sparsamar á stigin til Íslands í söngvakeppninni í Tórínó í kvöld. Lítið fór fyrir norrænni frændsemi en frændur vorir Írar sáu sér fært að senda eitt stig norður eftir.
Dómarar eftirfarandi ríkja gáfu Íslandi stig:
Svo fór að við fengum jafnmörg stig frá áhorfendum um alla álfuna, eða tíu stig til viðbótar. Ísland lauk því keppni með samtals tuttugu stig.
Enn á þó eftir að telja upp úr kjörkössunum hér heima, en fylgst verður með úrslltum sveitarstjórnarkosninga fram á nótt.