Spennu- og hasarmyndin Heart of Stone, semt tekin var upp að hluta á Íslandi, og loka þurfti miðbænum um tíma fyrir vikið, kemur út á næsta ári á Netflix.
Myndir er stjörnum prýdd og fer Gal Gadot með aðalhlutverkið.
Fyrsta stiklan úr myndinni hefur verið birt og má meðal annars sjá sprengingar við tónlistahúsið Hörpu og fleira.
Stiklan lofar góðu og gerir vel við hlut Íslands í myndinni. Sjón er sögu ríkari.