Tiffany Trump, dóttir Donalds Trumps, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og Michael Boulos giftu sig í Mar-a-Lago, setri Donalds Trumps, í Flórídaríki í Bandaríkjunum í gær.
Um tíma leit út fyrir að búðkaupsætlanir parsins væru foknar út í veður og vind. Bókstaflega, því fellibylur stefndi í átt að Palm Beach í Flórída í þar sem brúðkaupið átti að fara fram.
Parið kynntist á grísku eyjunni Mýkonos sumarið 2017. Í byrjun árs í fyrra fór Boulos á skeljarnar í Hvíta húsinu.