Stjörnurnar fá ekki rauðan dregil

Arna Steinarsdóttir, Sean O’Brien, Tanja Levý og Lilý Erla Adamsdóttir.
Arna Steinarsdóttir, Sean O’Brien, Tanja Levý og Lilý Erla Adamsdóttir.

Rauði dregillinn á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum sem fara fram á morgun verður ekki rauður heldur með öðru sniði en vaninn er á slíkum hátíðum. Upphaflega hugmyndin var að flytja hefðbundinn rauðan dregil til landsins en í ár mun hefðin vera brotin með skapandi hætti og kolefnissporin spöruð sem fylgja flutningum milli landa. Hönnuðirnir og listamennirnir Tanja Levý, Sean O’Brien og Lilý Erla Adamsdóttir hanna listrænu innsetninguna í Hörpu.

„Hátíðin er haldin til heiðurs evrópsku kvikmyndagerðarfólki og vildum við hönnuðir verksins skapa einstaka upplifun fyrir gestina. Viðburðurinn er haldinn í Hörpu þar sem arkitektúrinn er innblásinn af íslenskri náttúru, form byggingarinnar vísar í stuðlaberg og gólfefnið úr íslenskum steini,“ er haft eftir Tönju Levý, listræns stjórnanda og hönnuðar innsetningarinnar.

„Í stað þess að hanna hefðbundið teppi, vildum við færa margslungna náttúru Íslands inn í bygginguna og bjóða gestum hátíðarinnar upp á einstaka upplifun með innsetningu og skúlptúrum sem vísa veginn í átt að Eldborg.“

Stjörnurnar fá ekki rauðan dregil heldur mosa og hraun.
Stjörnurnar fá ekki rauðan dregil heldur mosa og hraun.

Getur átt framhaldslíf

Innsetningin samanstendur af mosavöxnu hrauni, jökulám og súlum úr stuðlabergi með ilmi frá Fischersundi. Efnisheimur innsetningarinnar byggist á staðbundnum hráefnum frá íslenskum fyrirtækjum.

Innsetningin er helst unnin úr tuftaðri ull frá Ístex, jarðvegsdúk og sagi sem hefur verið safnað frá vinnustofunni. Skúlptúrarnir eru einnig hannaðir með það í huga að innsetningin geti átt framhaldslíf eftir hátíðina.

Tanja Levý er þverfaglegur hönnuður sem hefur síðustu ár starfað á sviði búninga- og leikmyndahönnunar. Lilý Erla Adamsdóttir er textíllistakona og hönnuður. Hún hefur yfirumsjón með textílhönnun og ullarframleiðslu verkefnisins.

Sean O’Brien er þverfaglegur listamaður. Sean hannar og framleiðir strúktúr og áferð skúlptúra. Arna Steinarsdóttir er starfsnemi innsetningarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson