Loreen fulltrúi Svía í Eurovision

Loreen syngur Euphoria í Malmö 2013.
Loreen syngur Euphoria í Malmö 2013. AFP/John MacDougall

Söngkonan Loreen stóð uppi sem sigurvegari Melodifestivalen í kvöld með lagi sínu Tattoo og verður hún því fulltrúi sænsku þjóðarinnar í Eurovision sem fer fram í Liverpool í maí.

Úrslitin voru kunngjörð fyrir skömmu en samkvæmt sænska ríkisútvarpinu SVT hlaut söngkonan alls 177 stig frá dómnefnd og áhorfendum.

Flestir Eurovision-aðdáendur þekkja vel til Loreen en hún sigraði söngvakeppnina með yfirburðum árið 2012 með laginu Euphoria.

Svíþjóð skaust á toppinn í veðbönkum þegar að brot úr lagi söngkonunnar var fyrst birt á vef SVT í síðasta mánuði. Fyrir það hafði Úkraína vermt toppsætið.

mbl.is

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þolinmæðin er ekki þín sterka hlið en nú er nauðsynlegt að þú temjir þér hana. Sinntu þeim sem næst þér standa af kostgæfni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Colleen Hoover
3
Guðrún J. Magnúsdóttir
4
Róbert Marvin

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þolinmæðin er ekki þín sterka hlið en nú er nauðsynlegt að þú temjir þér hana. Sinntu þeim sem næst þér standa af kostgæfni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Colleen Hoover
3
Guðrún J. Magnúsdóttir
4
Róbert Marvin