Norman Lear, handritshöfundur og framleiðandi, er látinn, 101 árs að aldri. Hann átti að baki sjö áratuga feril í sjónvarpsiðnaðinum og meðal þekktustu verka hans eru All in the Family, Maude, The Jeffersons, Good Times og Sanford and Son. Lear var tekinn inn í frægðarhöll sjónvarpsakademíunnar árið 1984.
Fulltrúar Lear greindu frá andlátinu en hann andaðist í gærdag á heimili sínu.
Hann lætur eftir sig eiginkonu og sex börn sem hann á með fyrrverandi mökum sínum.
Margar þekktar stjörnur hafa minnst bandaríska sjónvarpsrisans á samfélagsmiðlum og má þar nefna Jimmy Kimmel, Josh Gad og Octviu Spencer.