Strandvarðastjarna greindist með brjóstakrabbamein

Leikkonan Nicole Eggert.
Leikkonan Nicole Eggert. Samsett mynd

Strandvarðastjarnan Nicole Eggert, sem sló eftirminnilega í gegn í hlutverki sínu sem Summer Quinn, greindi frá því á dögunum að hún hafi greinst með brjóstakrabbamein. Eggert, sem er 51 árs gömul, greindist skömmu fyrir jólin og bíður nú frekari rannsókna og meðferða.

Leikkonan ræddi um greininguna við bandaríska tímaritið People. „Þessi tími hefur sannarlega reynst mér erfiður,“ sagði Eggert, en hún fann hnút í vinstra brjósti við sjálfsskoðun í nóvember. „Ég bíð nú bara eftir að heyra hvort ég fari í aðgerð fyrir eða eftir lyfjameðferð.“

Frægðarsól leikkonunnar hefur ekki skinið skært síðustu ár, en Eggert átti sína dýrðardaga á áttunda og níunda áratugnum og þá aðallega í sjónvarpsþáttunum Baywatch, Who's The Boss og Charles in Charge. Síðasta hlutverk Eggert samkvæmt IMDb var talsetning í einum þætti af Robot Chicken árið 2019.

Góðvinkona Eggert, Mindy Molinary, hefur stofnað GoFundMe-reikning til þess að létta undir álagi og spítalareikningum leikkonunnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg