Borat-leikari sagður brjálaður yfir endurminningum Wilson

Rebel Wilson fjallar ítarlega um samskipti sín við leikarann Sacha …
Rebel Wilson fjallar ítarlega um samskipti sín við leikarann Sacha Baron Cohen í endurminningum sínum. Samsett mynd

Ástralska leikkonan Rebel Wilson hefur nú bæst í hóp þeirra Hollywood-stjarna sem senda frá sér endurminningar sínar. Í bókinni, titluð Rebel Rising, fjallar Wilson um líf sitt í Hollywood, gefur innsýn í heim fræga fólksins og nafngreinir einnig stórstjörnur sem hún segir hafa komið illa fram við sig, sérstaklega í upphafi ferils síns.

Wilson, sem er einna þekktust fyrir hlutverk sitt í Pitch Perfect og Bridesmaids, greindi frá því á samfélagsmiðlum nýverið að leikarinn Sacha Baron Cohen, sem hún lék samhliða í kvikmyndinni The Brothers Grimsby frá árinu 2016, væri á fullu að reyna að koma í veg fyrir útgáfu bókarinnar. Leikkonan fjallar ítarlega um samskipti sín við Cohen og lýsir honum sem algjörum hálfvita og óþokka.

Cohen sendi frá sér yfirlýsingu á mánudag þar sem hann sagði fullyrðingar Wilson vera tilhæfulausar og órökstuddar með öllu. Hann er sagður íhuga lögsókn.

Rebel Rising kemur í verslanir í byrjun apríl.

Skjáskot/Instagram Story
View this post on Instagram

A post shared by Rebel Wilson (@rebelwilson)

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg