Nýtt karókíæði í Þýskalandi

Þessa dagana berast stunur og óp frá þýskum krám þar sem gestir taka þátt í nýjasta æðinu: Klám-karókí.

Kvikmyndaframleiðandinn Satt und Durstig skipulagði frumsýningu í Berlín um helgina eftir að tilraunir í Hamborg höfðu lofað góðu. Þessi hugmynd hefur vakið athygli víðar í Þýskalandi og hefur verið reynd í mörgum stærstu borgunum.

Viðburðurinn fylgir reglum hefðbundins karókís en í stað þess að standa og syngja dægurlög við undirleik tölvu eiga þátttakendur að tala fyrir leikara í klámmyndum.

Myndirnar eru sýndar á tjaldi en lokað er fyrir hljóðið. Karl og kona fá hljóðnema í hendurnar og fá eina mínútu til að stynja og æpa í takt við aðfarirnar á tjaldinu. Áhorfendur velja síðan það par sem þykir hafa staðið sig best.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson