Vladimir Pútín kom fram opinberlega í fyrsta skipti í tíu daga í morgun þegar hann tók í hönd Almazbek Atambayev, forseta Kirgisistans, í Pétursborg. Samkvæmt frétt AFP-fréttaveitunnar virtist forsetinn vera fölur.

Þjóðarleiðtogarnir tókust í hendur áður en fundurinn hófst. Margir hafa velt vöngum yfir heilsufari Pútíns en ekki er algengt að hann láti ekki sjá sig opinberlega í svona langan tíma.
Forsetinn var spurður um meint veikindi hans og svaraði hann einfaldlega: „Það væri leiðinlegt án slúðursins.“