Opnunarhóf RIFF Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík fór fram í gærkvöldi í Háskólabíó. Íslenska heimildamyndin, Þriðji póllinn, var opnunarmynd hátíðarinnar. Um er að ræða nýja íslenska mynd eftir Andra Snæ Magnason og Anní Ólafsdóttur. Myndin er heimildamynd um geðhvörf. Högna Egilssyni, tónlistarmanni og Önnu Töru Edwards er fylgt eftir í myndinni en þau glíma bæði við geðhvörf.

Háskólabíó iðaði af lífi og fjöri. Vinkonurnar Agnes Bragadóttir fyrrverandi fréttastjóri á Morgunblaðinu og Bryndís Schram rithöfundur létu sig ekki vanta og heldur ekki Dagur B. Eggertsson og Arna kona hans. Þar var líka ein glæsilegasta forsetafrú heims, Eliza Reid.
Eins og sjá má á myndunum var fólk þakklátt fyrir að komast í bíó og fá upplyftingu fyrir andann.