116 kórónuveirusmit hafa greinst innanlands eftir sýnatöku gærdagsins. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á covid.is.

Af þeim sem greindust í gær voru 42 í sóttkví við greiningu, rúmlega 36%.
Alls eru nú 1.329 í einangrun og 1.941 í sóttkví. Sextán eru á sjúkrahúsi með veiruna.
Þrjú virk smit greindust á landamærunum í gær og er beðið eftir niðurstöðu úr mótefnamælingu hjá einum. Af þeim sem greindust á landamærunum eru þrír óbólusettir og einn fullbólusettur.
Af þeim sem greindust í gær er 71 fullbólusettur og 43 óbólusettir. Bólusetning er hafin hjá tveimur.
Í gær greindust 103 við einkennasýnatöku og þrettán við sóttkvíar- og handahófsskimanir. Alls voru 2.414 sýni tekin við einkennasýnatöku. 319 sýni voru tekin á landamærunum og 1.124 sýni við sóttkvíar- og handahófsskimanir.
Í fyrradag höfðu 108 smit greinst þegar tölur voru uppfærðar. Eitt smit hefur bæst við síðan og greindust því alls 109 í fyrradag.
Fréttin hefur verið uppfærð.