Farsóttarnefnd Landspítalans segir það algjörlega viðbúið að smit haldi áfram að greinast inni á deildum Landspítalans á meðan smit eru útbreidd í samfélaginu.

Það er í raun fátítt að smit greinist á Landspítalanum miðað við stærð vinnustaðarins og fjölda starfsfólks en hvert smit sem greinist krefst umfangsmikillar smitrakningar. Þetta kemur fram í hugleiðingum nefndarinnar.
Farsóttarnefnd hrósar starfsfólki Landspítalans hástert og segja þau mikinn heiður skilinn.
Starfsmaður á bráðalyflækningadeild Landspítalans greindist með Covid-19 í gær. Deildinni var lokuð og er nú beðið eftir niðurstöðum sýna frá sjúklingum og öðrum útsettum starfsmönnum.
Skimanir vegna smits hjá sjúklingi á geðendurhæfingardeild Klepps leiddu í ljós að starfsmaður deildarinnar hafi einnig smitast af veirunni. Sýnatökur munu halda áfram yfir helgina og lýkur þeim á þriðjudaginn ef það greinast ekki fleiri smit.