Íslandsbanki hyggst breyta reglum sínum varðandi verðbréfaviðskipti starfsmanna en þátttaka starfsmanna bankans í útboði ríkisins á 22,5% hlut sínum hefur verið harðlega gagnrýnd.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka.
Átta starfsmenn eða einstaklingar nátengdir starfsmönnum Íslandsbanka keyptu í bankanum.
Í byrjun apríl sagði Edda Hermannsdóttir, upplýsingafulltrúi bankans, við mbl.is að þeir starfsmenn sem hafi tekið þátt í útboðinu hafi allir verið skilgreindir fagfjárfestar og því hafi verið farið eftir reglum.
„Mikil umræða hefur skapast í samfélaginu um söluferlið og það fyrirkomulag sem notast var við. Meðal annars hefur komið fram gagnrýni á þátttöku starfsmanna bankans í útboðinu. Því tökum við alvarlega og stendur vinna yfir við breytingar á reglum bankans varðandi verðbréfaviðskipti starfsmanna,“ er haft eftir Birnu Einarsdóttur bankastjóra Íslandsbanka í tilkynningunni.