Breski fatahönnuðurinn Vivienne Westwood, féll frá í gær. Westwood hafði gríðarleg áhrif á tísku og pólitík og hefur verið kölluð móðir pönksins. Westwood var slétt sama um reglur og hafði litlar áhyggjur af því hvort að hún færi yfir velsæmismörk með hönnun og klæðaburði.

Mörg eftirminnileg atvik hafa átt sér stað á tískusýningum Westwood. Fyrirsætan Kate Moss gekk niður tískupallinn berbrjósta í stuttu pilsi og borðaði ís. Naomi Campell ökklabrotnaði einnig í ofurháum hælum.
Þrátt fyrir að vera einn frægasti fatahönnuður í heimi vildi Westwood meina að hún hafði engan áhuga á að verða fatahönnuður. Hún leiddist hins vegar út í fatahönnun í gegnum eiginmann sinn Malcolm McLaren, umboðsmann Sex Pistols, en þau ráku vinsæla fatabúð saman. Fyrsta tískusýning hennar fór fram árið 1981 og sagði Westwood að á meðan aðrir hönnuðir hefðu fengið innblástur frá fötum fyrri alda þá hafði hún einfaldlega hermt eftir þeim.
Eins og sjá má hér að neðan eru sokkabönd og lífstykki algeng í hönnun hennar. Stórir og miklir kjólar sem má einna helst sjá á gömlum málverkum á fínum söfnum úti í heimi eru það líka. Köflótta mynstrið er einnig einkennandi fyrir hönnun hennar en það á djúpar rætur í breskri menningu.