Covid-endurgreiðslumál fer fyrir Hæstarétt

Kórónuveiran Covid-19 | 13. janúar 2023

Hæstiréttur hefur fallist á áfrýjunarleyfi Ferðaskrifstofu Íslands í þremur málum þar sem ferðaskrifstofan hafði verið dæmd bæði í héraðsdómi og Landsrétti til að endurgreiða pakkaferð til Ítalíu sem var afpöntuð vegna útbreiðslu kórónuveirufaraldursins, en meðal annars er deilt um hvort „force majeure“ ákvæði eigi þarna við. Segir í ákvörðun Hæstaréttar að dómur í málinu geti haft fordæmisgildi um rétt til endurgreiðslu vegna afpöntunar pakkaferða og áfrýjunarleyfið því veitt.

Fjölskyldan átti pantaða ferð til Madonna di Campiglio á Ítalíu.
Fjölskyldan átti pantaða ferð til Madonna di Campiglio á Ítalíu. Ljósmynd/Luca Capuccini

Hæstiréttur hefur fallist á áfrýjunarleyfi Ferðaskrifstofu Íslands í þremur málum þar sem ferðaskrifstofan hafði verið dæmd bæði í héraðsdómi og Landsrétti til að endurgreiða pakkaferð til Ítalíu sem var afpöntuð vegna útbreiðslu kórónuveirufaraldursins, en meðal annars er deilt um hvort „force majeure“ ákvæði eigi þarna við. Segir í ákvörðun Hæstaréttar að dómur í málinu geti haft fordæmisgildi um rétt til endurgreiðslu vegna afpöntunar pakkaferða og áfrýjunarleyfið því veitt.

Hæstiréttur hefur fallist á áfrýjunarleyfi Ferðaskrifstofu Íslands í þremur málum þar sem ferðaskrifstofan hafði verið dæmd bæði í héraðsdómi og Landsrétti til að endurgreiða pakkaferð til Ítalíu sem var afpöntuð vegna útbreiðslu kórónuveirufaraldursins, en meðal annars er deilt um hvort „force majeure“ ákvæði eigi þarna við. Segir í ákvörðun Hæstaréttar að dómur í málinu geti haft fordæmisgildi um rétt til endurgreiðslu vegna afpöntunar pakkaferða og áfrýjunarleyfið því veitt.

Í nóvember staðfesti Landsréttur dóma héraðsdóms í máli þriggja einstaklinga sem höfðu afpantað ferðir til Ítalíu hjá fyrirtækinu, en þar tók Landsréttur undir sjón­ar­mið héraðsdóms að ör út­breiðsla veirunn­ar á áfangastaðnum hefði falið í sér óvenju­leg­ar og óviðráðan­leg­ar aðstæður í skiln­ingi laga um pakka­ferðir og sam­tengda fera­til­hög­un, sem höfðu af­ger­andi áhrif á fyr­ir­hugað ferðalag kaup­enda og fjöl­skyldna þeirra. 

Gerðu þær aðstæður það að verk­um að ekki var ör­uggt að ferðast til Ítal­íu og talið því að þeir sem höfðu fest kaup á pakka­ferðinni ættu af þeim sök­um rétt til fullr­ar end­ur­greiðslu henn­ar úr hendi ferðaskrifstofunnar, á grund­velli fyrr­greindra laga.

Ferðaskrifstofa Íslands samanstendur af Úrval Útsýn, Sum­ar­ferðum, Plús­verðum og Ice­land Tra­vel Bureau.

Í beiðni sinni til Hæstaréttar segir Ferðaskrifstofa Íslands að úrslit málsins hafi verulegt almennt gildi fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu sem selji pakkaferðir eða samtengda ferðaþjónustu. Þá hafi þetta einnig verulega fjárhagslega þýðingu fyrir fyrirtækið og að dómur Landsréttar hafi verið bersýnilega rangur að efni til þar sem byggt sé á rangri lögskýringu. Tekur Hæstiréttur sem fyrr segir undir að málið geti haft fordæmisgildi.

Það eru lögmennirnir Ólafur Gústafsson og Grétar Már Ólafsson sem fóru upphaflega í mál við ferðaskrifstofuna ásamt Steinari Þór Ólafssyni, en þeir Ólafur og Grétar flytja sín mál sjálfir og Ólafur flytur einnig mál Steinars.

mbl.is