Leysa Boeing 757 af hólmi með nýjum Airbus flugvélum

Sviptivindar í flugrekstri | 7. apríl 2023

Leysa Boeing 757 af hólmi með nýjum Airbus flugvélum

Icelandair og Airbus hafa undirritað viljayfirlýsingu um kaup á 13 flugvélum af gerðinni Airbus A321XLR og kauprétt að tólf flugvélum til viðbótar. 

Leysa Boeing 757 af hólmi með nýjum Airbus flugvélum

Sviptivindar í flugrekstri | 7. apríl 2023

Icelandair og Airbus hafa undirritað viljayfirlýsingu um kaup á 13 …
Icelandair og Airbus hafa undirritað viljayfirlýsingu um kaup á 13 flugvélum af gerðinni Airbus A321XLR og kauprétt að tólf flugvélum til viðbótar. Ljósmynd/Icelandair

Icelandair og Airbus hafa undirritað viljayfirlýsingu um kaup á 13 flugvélum af gerðinni Airbus A321XLR og kauprétt að tólf flugvélum til viðbótar. 

Icelandair og Airbus hafa undirritað viljayfirlýsingu um kaup á 13 flugvélum af gerðinni Airbus A321XLR og kauprétt að tólf flugvélum til viðbótar. 

Í tilkynningu frá Icelandair segir að vélarnar verða afhentar frá og með árinu 2029. 

Icelandair gerir þó ráð fyrir að hefja rekstur á Airbus vélum á árinu 2025 og samningar um leigu á fjórum flugvélum af gerðinni Airbus A321LR til afhendingar 2025 eru á lokametrunum, auk þess sem gert er ráð fyrir fleiri slíkum vélum í rekstur fram til ársins 2029.“

Þá segir að flugfélagið hafi unnið að endurnýjun flugflotans á undanförnum árum og munu þessar vélar endanlega leysa Boeing 757 vélar félagsins af hólmi.

Í tilkynningunni segir að kaupverð vélanna sé trúnaðarmál á milli samningsaðila.

„Fjármögnun verður ákveðin þegar nær dregur að afhendingu þar sem fjölbreyttir fjármögnunarkostir verða skoðaðir.“

8.700 km drægni 

Nýju vélarnar rúma um 190 farþega en til samanburðar rúma Boeing 757 flugvélar félagsins 183 farþega. 

Airbus A321XLR flugvélin hefur allt að 8.700 km drægni sem gerir Icelandair kleift að nýta vélina á fjarlægari áfangastaði í núverandi leiðakerfi ásamt því að skapa tækifæri til þess að fljúga á nýja áfangastaði. Airbus A321LR flugvélin hefur allt að 7.400 km. drægni sem gerir Icelandair kleift að nýta hana í núverandi leiðakerfi.

Þá segir að Boeing 757, 767 og 737 MAX flugvélarnar munu þó halda áfram að gegna mikilvægu hlutverki í rekstri Icelandair á komandi árum. 

Fram til ársins 2025 mun Icelandair áfram reka flugflota sem samanstendur einungis af Boeing flugvélum en frá afhendingu fyrstu Airbus vélanna mun félagið reka blandaðan flota sem mun samanstanda bæði af Airbus og Boeing flugvélum.

„Það er ánægjulegt að tilkynna að við höfum nú komist að niðurstöðu um framtíðarflota Icelandair. Við höfum ákveðið að Airbus A321LR og A321XLR verði arftakar Boeing 757 flugvéla félagsins sem  munu hætta í rekstri  á næstu árum. Boeing 757 vélin sem hefur þjónað félaginu frá árinu 1990 og reynst okkur afar vel hefur verið í lykilhlutverki í uppbyggingu Íslands sem tengimiðstöðvar í flugi og okkar yfirgripsmikla leiðakerfis. Nú munu hinar öflugu Airbus vélar taka við. Þær munu gera okkur kleift að þróa viðskiptalíkan félagsins enn frekar í flugi yfir Atlantshafið og jafnframt skapa tækifæri til að sækja á nýja og spennandi markaði,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair. 

 

mbl.is