Auka á eftirlit með sjókvíaeldi

Fjárlög 2024 | 13. september 2023

Auka á eftirlit með sjókvíaeldi

Gert er ráð fyrir 126 milljónum króna á fjárlögum næsta árs til að auka eftirlit Matvælastofnunar með sjókvíaeldi og tryggja fullnægjandi eftirlit með skráningum og innra eftirliti sjókvíaeldisfyrirtækja.

Auka á eftirlit með sjókvíaeldi

Fjárlög 2024 | 13. september 2023

Gert er ráð fyrir að um tveir þriðju hlutar fjármagnsins …
Gert er ráð fyrir að um tveir þriðju hlutar fjármagnsins fari í að fjölga stöðugildum í fiskeldisdeild Matvælastofnunar en að um einn þriðji fari til uppbyggingar, viðhalds og reksturs á búnaði. mbl.is/Þorgeir

Gert er ráð fyrir 126 milljónum króna á fjárlögum næsta árs til að auka eftirlit Matvælastofnunar með sjókvíaeldi og tryggja fullnægjandi eftirlit með skráningum og innra eftirliti sjókvíaeldisfyrirtækja.

Gert er ráð fyrir 126 milljónum króna á fjárlögum næsta árs til að auka eftirlit Matvælastofnunar með sjókvíaeldi og tryggja fullnægjandi eftirlit með skráningum og innra eftirliti sjókvíaeldisfyrirtækja.

Þá er gert er ráð fyrir að framlagið muni hækka á komandi árum og verði í kringum 230 milljónir króna frá og með árinu 2026.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í fjárlagafrumvarpi ársins 2024 sem kynnt var í gær.

Bregðast við áskorunum

Tillagan er hluti af aðgerðum stjórnvalda til að bregðast við áskorunum í sjávarútvegi og fiskeldi með því að efla stjórnsýslulega umgjörð og stuðla þannig að aukinni verðmætasköpun fyrir íslenskt þjóðarbú til framtíðar.

Gert er ráð fyrir að um tveir þriðju hlutar fjármagnsins fari í að fjölga stöðugildum í fiskeldisdeild Matvælastofnunar en að um einn þriðji fari til uppbyggingar, viðhalds og reksturs á búnaði.

mbl.is