Sækir um endurnýjun hvalveiðileyfis

Hvalveiðar | 31. janúar 2024

Sækir um endurnýjun hvalveiðileyfis

Hvalur hf. hefur farið fram á við matvælaráðuneytið að leyfi fyrirtækisins til hvalveiða verði endurnýjað til næstu fimm ára.

Sækir um endurnýjun hvalveiðileyfis

Hvalveiðar | 31. janúar 2024

Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf.
Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hvalur hf. hefur farið fram á við matvælaráðuneytið að leyfi fyrirtækisins til hvalveiða verði endurnýjað til næstu fimm ára.

Hvalur hf. hefur farið fram á við matvælaráðuneytið að leyfi fyrirtækisins til hvalveiða verði endurnýjað til næstu fimm ára.

Erindi þessa efnis var sent ráðuneytinu í gær. Þar er minnt á með vísan til nýlegs álits umboðsmanns Alþingis að samkvæmt stjórnarskrá sé öllum frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa og verði það frelsi aðeins skert með lögum frá Alþingi.

Hvalur vekur athygli á því að fyrirtækið hafi unnið að og fjárfest í þróun og betrumbótum veiðibúnaðar og veiðiaðferða, á grundvelli tækninýjunga og framfara á því sviði. Hafi sú vinna skilað marktækum breytingum til batnaðar á síðustu vertíð. Þess er vænst að afgreiðslu leyfisins verði hraðað.

Nán­ar má lesa um málið í Morg­un­blaðinu í dag.

Hvalur hf. hefur farið fram á við matvælaráðuneytið að leyfi …
Hvalur hf. hefur farið fram á við matvælaráðuneytið að leyfi fyrirtækisins til hvalveiða verði endurnýjað til næstu fimm ára. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is