Hafnaði nýrri rafloststækni við hvalveiðar

Hvalveiðar | 29. janúar 2024

Hafnaði nýrri rafloststækni við hvalveiðar

Ný og mjög lofandi tækni við hvalveiðar hefur verið í þróun hjá Hval hf. Byggir hún á raflosti og er talin virka það vel að hún geti jafnvel leyst sprengiskutulinn af hólmi.

Jón Gunnarsson fullyrðir að Hvalur hf hafi verið búinn að fjárfesta hundruð milljóna í verkefninu en matvælaráðherra hafi hafnað því að gera tilraunir með þessa aðferð. Jón veltir því fyrir sér hvort þar hafi ráðið för ótti um of góða útkomu. Hann segir rafloststæknina rúmast vel innan þess regluverks sem gildir um hvalveiðar.

Leyfi Hvals hf til veiða á langreyði rann út um áramót. Það var veitt til fimm ára og er nú útrunnið. Umsókn um endurnýjað leyfi mun að óbreyttu lenda inni á borði hjá formanni VG, Katrínu Jakobsdóttur, þar sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra er í veikindaleyfi.

Hvalur níu kemur til hafnar í Hvalfirði.
Hvalur níu kemur til hafnar í Hvalfirði. mbl.is/Þorgeir

Einungis nokkrir mánuðir í næstu vertíð

Í Dagmálum Morgunblaðsins segir Jón, sem þekkir mjög vel til á þessu sviði, að forsagan sýni að þetta geti orðið ágreiningsmál í ríkisstjórnarsamstarfinu. Þó svo að „engar forsendur séu til annars en að leyfa veiðar áfram“, að hans sögn.

Einungis nokkrir mánuðir eru í næstu hvalveiðivertíð og þörf er á að ráða allt að 150 starfsmenn í tengslum við veiðarnar, standsetja verksmiðju og huga að skipum. 

Jón Gunnarsson minnir á að atvinnufrelsi sé tryggt og varið í stjórnarskránni. Hugmyndir þingmanna um að Alþingi banni hvalveiðar standist ekki skoðun og kunni að vekja upp stóra skaðabótakröfu á hendur ríkissjóði.

Í broti úr þættinum hér að ofan ræðir Jón þessa stöðu. Þátturinn í heild sinni er aðgengilegur áskrifendum Morgunblaðsins.

mbl.is