Nær útilokað að ná markmiðum um orkuskipti

Loftslagsvá | 10. febrúar 2024

Nær útilokað að ná markmiðum um orkuskipti

Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri segir raunhæft að ná fullum orkuskiptum á landi árið 2040. Þegar hún er spurð hvort sömu markmið megi yfirfæra á skipaflota landsins er erfiðara að ráða í orð hennar en þá segir hún að það yrði mjög krefjandi. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, sem kynntur var árið 2021 þegar Katrín Jakobsdóttir endurnýjaði umboð stjórnar sinnar, var kveðið á um að Ísland myndi ná fullu kolefnishlutleysi árið 2040.

Miðað við orð orkumálastjóra, sem fer fyrir stofnuninni sem móta á langtímastefnu ríkisins í orkumálum og vera ríkisstjórn landsins til ráðgjafar um þau efni, munu stjórnvöld, hver sem þau verða, ósennilega ná að uppfylla hið metnaðarfulla og tæplega þriggja ára gamla loforð.

Heldur í bjartsýnina

„Ég held að þetta sé raun­hæft mark­mið þegar við horf­um á orku­skipti á landi. Ég held að þetta sé afar krefj­andi, ég ætla að halda í bjart­sýn­ina hérna, en ég held að þetta sé afar krefj­andi, bæði út af orku­hlut­an­um, það er al­veg rétt sem þú seg­ir að þetta eru lang­tíma fram­kvæmd­ir og við leys­um aldrei vanda með því að smella fingr­um. Þetta er alltaf eitt­hvað sem tek­ur tíma í inn­leiðingu, fram­kvæmd­irn­ar sjálf­ar og svo hin hliðin.“ 

Þetta segir Halla Hrund sem er gestur nýjasta þáttar Spursmála.

Katrín Jakobsdóttir myndaði ríkisstjórn árið 2017 en við endurnýjun stjórnarsáttmálans …
Katrín Jakobsdóttir myndaði ríkisstjórn árið 2017 en við endurnýjun stjórnarsáttmálans 2021 var ákveðið að full oruksipti yrðu orðin að veruleika í síðasta lagi árið 2040. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sækja mikinn lærdóm

„Ég vil hins veg­ar segja að það er búið að vera áhuga­vert að sjá þau fyr­ir­tæki sem hafa verið að taka skref og ég hef þá trú, við lær­um alltaf mest á því að gera hlut­ina. Ég er sjálf með bak­grunn í sveit og þegar maður fer að fram­kvæma þá kem­ur svo mik­ill lær­dóm­ur og við mun­um sjá það núna í þeim verk­efn­um sem fyr­ir­tæk­in eru hvaða lær­dóm­ur kem­ur og frá þeim lær­dómi mun von­andi koma svo­lítið raun­særri mynd á þetta ferðalag Íslands,“ segir orkumálastjóri.

Stjórnarsáttmálinn skýr

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar sem kynntur var með pomp og prakt árið 2021 er skýrt kveðið á um að orkuskipti verði að fullu innleidd árið 2021 og er þar ekki gerður áskilnaður um að það tengist aðeins orkuskiptum á landi. Þar segir:

„Lög verður fram þingsályktun um orkuskipti og útfösun jarðefnaeldsneytis, þar sem settar verða fram aðgerðir og grunnur lagður að því að fullum orkuskiptum verði náð eigi síðar en 2040 og Ísland verði óháð jarðefnaeldsneyti fyrst þjóða.“

Greinir á um ráðgjöf

Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins hefur haldið því fram að ríkisstjórn landsins hafi sett hið göfuga markmið fyrir árið 2040 á grundvelli upplýsinga frá Orkustofnun, og því tekið ákvörðun um mun metnaðarfyllri markmið en raunhæft hafi verið að standa við. Þessu hafnar Halla Hrund í viðtalinu í Spursmálum. Segir hún að öll hennar ráðgjöf hafi lotið að orkuskiptum á landi en ekki innifalið þær stóru áskoranir sem tengjast útfösun jarðefnaeldsneytis í skipaflota landsins.

Viðtalið við Höllu Hrund má sjá og heyra í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Það er einnig aðgengilegt á Youtube og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

mbl.is