Fjóla og Ívar gáfu syninum nafn

Frægar fjölskyldur | 26. febrúar 2024

Fjóla og Ívar gáfu syninum nafn

Fjóla Sigurðardóttir, fyrrverandi stjórnandi hlaðvarpsins Eigin konur, og knattspyrnumaðurinn Ívar Örn Árnason eignuðust sitt fyrsta barn saman þann 9. janúar síðastliðinn. Nú hafa þau gefið syninum nafn. 

Fjóla og Ívar gáfu syninum nafn

Frægar fjölskyldur | 26. febrúar 2024

Sonur Fjólu Sigurðardóttur og Ívars Arnar Árnasonar er kominn með …
Sonur Fjólu Sigurðardóttur og Ívars Arnar Árnasonar er kominn með nafn! Skjáskot/Instagram

Fjóla Sigurðardóttir, fyrrverandi stjórnandi hlaðvarpsins Eigin konur, og knattspyrnumaðurinn Ívar Örn Árnason eignuðust sitt fyrsta barn saman þann 9. janúar síðastliðinn. Nú hafa þau gefið syninum nafn. 

Fjóla Sigurðardóttir, fyrrverandi stjórnandi hlaðvarpsins Eigin konur, og knattspyrnumaðurinn Ívar Örn Árnason eignuðust sitt fyrsta barn saman þann 9. janúar síðastliðinn. Nú hafa þau gefið syninum nafn. 

Fjóla og Ívar tilkynntu nafnið í sameiginlegri færslu á Instagram þar sem þau birtu fallega mynd af syninum. Hann fékk nafnið Bjarki Bent Ívarsson. 

Gerðu samning til 18 ára

Parið sagði frá því að þau ættu von á barni á skemmtilegan máta í júní 2023, en Ívar spilar með KA á Akureyri í bestu deild karla í knattspyrnu á meðan Fjóla spilaði áður með Fram. 

„Fé­lag­skipta­glugg­inn opnaði fyrr í H3 og við höf­um gert 18 ára samn­ing við mjög efni­leg­an leik­mann sem kem­ur til leiks snemma í janú­ar. Ekki er vitað um þyngd, hæð eða kyn leik­manns­ins eins og stend­ur en fleiri upp­lýs­ing­ar verða til­kynnt­ar seinna,“ skrifuðu þau við skemmtilega mynd.

Fjölskylduvefur mbl.is óskar þeim innilega til hamingju með nafnið!

mbl.is