Söngleikurinn Frost var frumsýndur í Þjóðleikhúsinu á laugardaginn var en hann er byggður á Disneymyndinni Frozen og fjallar um ungar sterkar konur sem þurfa að takast á við örlög sín.

Vel var mætt á frumsýninguna og mátti þar sjá þekkta einstaklinga. Á meðal gesta var Birgitta Haukdal söngkona en með í för var Saga Júlía dóttir hennar. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra mætti með Nínu systur sína sem er mikill Disney-aðdáandi. Þar var líka Hilmir Snær Guðnason og Maríanna Hilmisdóttir enda Vala Kristín Eiríksdóttir leikkona og kærasta Hilmis í aðalhlutverki sem hin stórkostlega Anna en Elsu leikur Hildur Vala Baldursdóttir.
Jósefína Dickow Helgadóttir og Nína Sólrún Tamimi leika litlu Elsu og Iðunn Eldey Stefánsdóttir og Emma Máney Emilsdóttir leika litlu Önnu í leikstjórn Gísla Arnar Garðarssonar.
Bragi Valdimar Skúlason þýddi leikritið og var hann að sjálfsögðu á frumsýningunni. Börkur Jónsson gerði leikmyndina sem er töfrum líkust, Andri Ólafsson og Birgir Þórisson sáu um tónlistina, Christina Lovery hannaði búningana sem spila stór hlutverk í hinum frosna ævintýraheimi.