Stefnt að því malbika 600m kafla á Breiðholtsbraut, mitt á milli Jafnarsels og Vatnsendahvarfs, í dag. Á vef Vegagerðarinnar segir að malbika eigi á báðar akreinar. Unnið verður við eina akrein í einu og má því búast við einhverjum umferðartöfum á framkvæmdatímanum, sem er áætlaður frá klukkan níu í dag til hálfátta í kvöld.
Eru vegfarendur beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin, sem eru þröng og menn og tæki því við vinnu mjög nálægt akbrautunum.