Tilraunaskot stjórnvalda í Íran á meðaldrægri eldflaug fyrr í dag gæti hugsanlega sett í uppnám kjarnorkusamninginn sem gerður var á milli Bandaríkjanna og Íran árið 2015, þegar Barack Obama var forseti. AFP-fréttastofan greinir frá.
Litið er á skotið sem ögrun við Donald Trump, núverandi forseta Bandaríkjanna, sem gagnrýndi eldflaugaáætlun Íran harðlega í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í vikunni. Ýjaði forsetinn meðal annars að því að Íranar væru vísir til að brjóta gegn samningnum og að til greina kæmi að rifta honum. Trump sakar Íran nú einnig um að vera í samstarfi við stjórnvöld í Norður-Kóreu.
Hann skrifaði færslu um málið á Twitter nú í kvöld. „Íranar skutu eldflaug í tilraunaskoti, sem gæti náð alla leið til Ísrael. Þeir eru líka í samstarfi við Norður-Kóreu. Það fer ekki mikið fyrir samkomulaginu okkar!“ skrifaði forsetinn á Twitter.
Eldlauginni, sem hefur tveggja þúsunda kílómetra drægi, var skotið upp í morgun og var sýnt beint frá skotinu í ríkissjónvarpi landsins. Ekki hefur verið upplýst um hvaðan henni var skotið.