Lögreglan í Los Angeles rannsakar nú meintan barnaklámshring í Hollywood. Rannsóknin er byggð á gögnum frá leikaranum Corey Feldman.
Í frétt The Guardian kemur fram að lögreglan hafi staðfest að hún hafi undir höndum skýrslu frá fyrrverandi barnastjörnunni sem innihaldi gögn um kynferðisbrot gegn ungum leikurum í Hollywood.
Feldman greindi frá því á dögunum að hann ætli sér að uppljóstra um hring barnaníðinga í Hollywood. Hann hefur nú hafið hópsöfnun fyrir heimildarmynd um umfang barnaníðs í kvikmyndaborginni.
Ross Nemeroff, rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglunni í Los Angeles, staðfestir í samtali við The Hollywood Reporter að rannsókn tengd barnaníði í Hollywood sé hafin hjá embættinu. Feldman greindi frá því á Twitter-aðgangi sínum að hann hefði afhent lögreglunni gögn um málið.
IMPORTANT CAMPAIGN UPD8: I JUST COMPLETED A FORMAL SIT DOWN INTERVIEW W @LAPDHQ SPECIAL DIVISION, & GAVE THEM ALL THE INFO I KNOW! THIS WAS
— Corey Feldman (@Corey_Feldman) November 7, 2017
Sögur um barnaníð í Hollywood hafa sprottið upp reglulega en aldrei fengið eins mikinn hljómgrunn og nú. Ástæðuna má rekja til þess fjölda sem hefur stigið fram og greint frá reynslu sinni af kynferðisofbeldi í kjölfar þeirra leikkvenna sem hafa greint frá ofbeldi og áreiti af hálfu kvikmyndaframleiðandans Harvey Weinstein.
Lestu meira: Kerfisbundið barnaníð í Hollywood