Um sextíu aðstandendur og nánir vinir Hinriks prins, eiginmanns Margrétar Danadrottningar, verða viðstaddir útför hans í dag.
Útförin verður gerð frá hallarkirkjunni í Christansborg og hefst athöfnin klukkan 11 að dönskum tíma, klukkan 10 að íslenskum.
Þrír kórar munu syngja við útförina, m.a. Drengjakór Kaupmannahafnar en Hinrik var verndari kórsins í 45 ár.
Tíu menn úr konunglegu lífvarðarsveitinni munu bera kistuna frá kirkju.
Í kjölfar athafnarinnar munu syrgjendur koma saman í Amalíuborg.
Lík Hinriks verður brennt. Helmingi öskunnar verður dreift yfir sjó við strendur Danmerkur og hinn helmingurinn verður jarðsettur í einkagrafreit við höllina í Fredensborg. Almennur aðgangur verður ekki að leiðinu að því er sagði í fréttatilkynningu frá dönsku konungsfjölskyldunni.
Hinrik lést í síðustu viku, 83 ára að aldri.
Bein lýsing danska ríkisútvarpsins frá útförinni.