Weinstein gefur sig fram við lögreglu

AFP

Harvey Weinstein, fyrrverandi kvikmyndaframleiðandi í Hollywood, hyggst gefa sig fram við lögregluyfirvöld í New York á morgun vegna rannsóknar á meintum kynferðisbrotum hans gegn konum. Þetta þetta hefur New York Times eftir ónefndum aðilum innan lögreglunnar. 

Lögregla er sögð hafa ætlað að handtaka Weinstein á morgun, en hann muni gefa sig fram sjálfur.

Heimildir herma að Weinstein verði sóttur til saka vegna margra þeirra kynferðisbrota sem á hann eru borin. Engin ákæra gegn honum hefur verið gefin út enn, en New York Times fullyrðir að ákæra gegn honum verði gefin út á morgun.

Mál Luciu Evans, einnar þeirra kvenna sem fram stigu á síðasta ári og sökuðu Weinstein um kynferðisbrotin, er eitt þeirra mála sem gæti ratað fyrir dómstóla að því er fram kemur í New York Times. Hún sagði Weinstein hafa neytt sig til þess að eiga við hann munnmök árið 2004.

Meira en hundrað konur hafa frá því í október á síðasta ári sakað Weinstein um kynferðisbrot, allt frá áreitni til líkamsárása og nauðgana. 

Weinstein hefur frá upphafi neitað því að hafa átt kynmök við konurnar án samþykkis, en í bandarískum fjölmiðlum er hann sagður hafa leitað sér hjálpar við kynlífsfíkn.

Verjandi Weinstein neitar að tjá sig um málið við fjölmiðla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert