Handalaus maður stakk mann

Maðurinn er þekktur fyrir að mála listaverk með fótum sínum. …
Maðurinn er þekktur fyrir að mála listaverk með fótum sínum. Hann var handtekinn í Miami Beach. Af Wikipedia

Tæplega fimmtugur heimilislaus karlmaður hefur verið handtekinn í Miami fyrir að stinga mann tvívegis með skærum. Til árásarinnar notaði maðurinn fætur sínar. Í kjölfarið lagði hann á flótta, hefur AP-fréttastofan eftir lögreglunni.

Hinn meinti árásarmaður er þekktur fyrir að mála litskrúðug listaverk með fótum sínum. Hann hefur þegar verið ákærður fyrir árásina. Hann segist hafa stungið manninn í sjálfsvörn. 

Fórnarlambið segist hafa verið að spyrja manninn til vegar er hann réðst á sig. Maðurinn var hvorki undir áhrifum fíkniefna eða áfengis er hann var handekinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert