Blæddi úr eyrum farþeganna

Lögreglan í Frankfurt segir 33 farþega hafa verið flutta á …
Lögreglan í Frankfurt segir 33 farþega hafa verið flutta á sjúkrahús. AFP

Flugvél lággjaldaflugfélagsins Ryanair, sem á leið var frá Dyflinni á Írlandi til Króatíu, neyddist til að lenda á Frankfurt-Hahn-flugvelli í nótt eftir að blæða tók úr eyrum farþega vélarinnar.

Orsökin var sú að loftþrýstingur inni í vélinni féll, að því er farþegi um borð segir í viðtali við írska miðilinn Irish Times.

Lögreglan í Frankfurt segir 33 farþega hafa verið flutta á sjúkrahús eftir að hafa kvartað undan höfuð- og eyrnaverkjum auk þess sem þeir þjáðust af ógleði, samkvæmt umfjöllun þýska miðilsins Spiegel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert