Hyggjast rífa nýbyggða mosku í Kína

Hundruð múslima hafa safnast saman fyrir utan Weizhou-moskuna.
Hundruð múslima hafa safnast saman fyrir utan Weizhou-moskuna. Skjáskot/Weibo

Hundruð Hui-múslima í norðvesturhluta Kína reyna nú hvað þeir geta að koma í veg fyrir að nýlega byggð moska þeirra verði eyðilögð. Embættismenn segja að Weizhou-moskan, sem er í Ningxia-héraði í Kína, hafi verið byggð án þess að tilskilin byggingaleyfi væru fyrir hendi.

Til stendur að eyðileggja moskuna, en múslimarnir hafa efnt til fjöldamótmæla til þess að koma í veg fyrir að yfirvöld nái að rífa bygginguna.

23 milljónir íbúa í Kína eru múslimar og hefur íslamstrú verið útbreidd í Ningxia-héraði í aldaraðir. Moskan er byggð í mið-austurlenskum stíl, með hvelfingum og háum turnum.

Moskur í Kína hafa oftast verið byggðar í kínverskum stíl, sem er talsvert frábrugðinn þeim mið-austurlenska. Fréttaritari BBC í Kína segir að andstaða yfirvalda í Ningxia-héraði við moskuna byggist ef til vill á byggingarstílnum, sem þykir benda til aukinna arabískra áhrifa í kínverskri íslamstrú.

Yfirvöld tilkynntu að moskan yrði eyðilögð 3. ágúst síðastliðinn og var tilkynningu yfirvalda dreift á meðal Hui-múslima á internetinu, samkvæmt frétt Reuters um málið. 

Margir hafa spurt sig að því af hverju bygging moskunnar hafi ekki verið stöðvuð á fyrri stigum, en bygging hennar tók tvö ár.

Hui-múslimar eru fjölmennir í Ningxia héraði.
Hui-múslimar eru fjölmennir í Ningxia héraði. AFP

Mótmæli fyrir framan moskuna hófust í gær og héldu áfram í dag, en á samfélagsmiðlum má sjá myndir að hundruðum múslima sem safnast hafa saman fyrir framan moskuna og vilja með því koma í veg fyrir að niðurrifsframkvæmdir yfirvalda geti hafist.

Íbúi sem BBC ræðir við segir að Hui-múslimar og kínversk yfirvöld séu komin í hálfgerða störukeppni vegna málsins. Almenningur á svæðinu hyggist ekki leyfa yfirvöldum að snerta moskuna, en yfirvöld láti ekki bilbug á sér finna.

Rífa átti bygginguna í dag, en óljóst er hvort af því verður. Mögulega verður einhver málamiðlun fundin til að allir geti gengið sáttir frá borði.

Talsmaður samtaka múslima í héraðinu segir að yfirvöld hyggist ekki rífa moskuna algjörlega, heldur breyta útliti hennar og minnka hana, en byggingin er gríðarstór.

Trúfrelsi í Kína?

Samkvæmt orðanna hljóðan tryggir kínverska stjórnarskráin trúfrelsi þegnanna, en í raun er trúarlíf Kínverja undir miklu eftirliti ríkisstjórnarinnar. Kristnar kirkjur hafa til dæmis verið skikkaðar til að fjarlægja krossa af þökum bygginganna, einmitt á þeim grundvelli að táknin brjóti gegn byggingarreglugerðum.

Kommúnistaflokkurinn sem öllu ræður í Kína kennir sig ekki við trúarbrögð og hefur á síðustu árum haft áhyggjur af erlendum áhrifum innan trúarbragða í Kína og ráðist í herferð gegn þeim.

Hui-múslimar hafa að mestu verið þægilegir þegnar og fengið að iðka sína trú í friði, en Uighur-múslimar í Xinjiang-héraði, vestast í Kína, hafa á undanförnum árum orðið fyrir auknu áreiti stjórnvalda trúar sinnar vegna.

Talið er að um 23 milljónir Kínverjar séu íslamstrúar.
Talið er að um 23 milljónir Kínverjar séu íslamstrúar. AFP

Mannréttindasamtökin Human Rights Watch segja að þúsundir Uighur-múslima hafi verið sendir í endurmenntunarbúðir yfirvalda, þar sem þeim er gert að afneita trú sinni.

Amnesty International segir að ákvörðun yfirvalda um að rífa moskuna í Ningxia-héraði sýni að nú ætli Kommúnistaflokkurinn að setja hömlur á trúariðkun fleiri minnihlutahópa múslima í Kína.

Frétt BBC um málið

Frétt Reuters um málið

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert