Íslensk getspá leitar að þremur milljónamæringum því þrír vinningshafar eiga enn eftir að gefa sig fram. Ef þú hefur keypt miða á landsbyggðinni gætir þú verið einn af þeim heppnu. Sá sem keypti miða í sumar á Seyðisfirði hefur enn ekki vitjað rúmlega 25 milljóna króna.
Vinningsmiðarnir voru seldir á eftirfarandi stöðum:
Dalbotni á Seyðisfirði, útdráttur 7. júlí 2018
vinningur að upphæð 25.394.380 krónur
vinningstölur 2 – 9 – 24 – 25 – 35 / 19 (bónustala)
Olís Stykkishólmi, útdráttur 23. febrúar 2019
vinningur að upphæð 7.639.900 krónur
vinningstölur 5 – 6 – 12 – 29 – 31 / 11 (bónustala)
N1 Egilsstöðum, útdráttur 2. mars 2019
Vinningur að upphæð 4.088.690 krónur
vinningstölur 4 – 8 – 17 – 21 – 29 / 19 (bónustala)