Allir muni öfunda Bandaríkin

Donald Trump.
Donald Trump. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur greint frá fyrirhuguðum breytingum á innflytjendakerfi landsins sem hann segir að öll heimsbyggðin eigi eftir að öfunda landið af.

„Áætlun okkar er að umbreyta innflytjendakerfi Bandaríkjanna þannig að það verði þjóðarstolt okkar og öfundað af allri heimsbyggðinni,“ sagði Trump í Hvíta húsinu.

Lögð verður áhersla á að stemma stigu við straumi ólöglegra innflytjenda til Bandaríkjanna og hælisleitenda. Verkamenn sem eru hæfir í sínu fagi eru aftur á móti hvattir til að koma til landsins.

Ólíklegt er talið að þessar breytingar muni ná í gegn á bandaríska þinginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert