Kýr skotin í miðborg Árósa

Kýrin slapp úr sláturhúsi á athafnasvæði nærri Árósahöfn og var …
Kýrin slapp úr sláturhúsi á athafnasvæði nærri Árósahöfn og var sögð árásargjörn og hættuleg. Lögreglumenn tóku ákvörðun um að skjóta hana.

Glundroði skapaðist í miðborg Árósa í morgun eftir að kýr slapp úr sláturhúsi á atvinnusvæði niðri við hafnarbakkann. Kýrin var sögð bæði árásargjörn og hættuleg manneskjum og endaði lögregla á að neyðast til að skjóta hana, eftir nokkra eftirför.

Greint er frá þessu í staðarblaðinu Aarhus Stiftstidende og því að tilkynning hafi borist um lausagöngu beljunnar kl. 8:58 í morgun, á háannatíma.

Janni Lundager, upplýsingafulltrúi lögreglunnar á Austur-Jótlandi, segir við blaðið að lögregla hafi ákveðið að taka ekki neina áhættu heldur bæði sent mikinn mannskap á staðinn og fyrirskipað léttlestinni sem ekur um borgina að stöðva akstur, en ekki er langt frá sláturhúsinu að lestarteinunum sem þjóna miðborginni.

Kýrin hljóp þó ekki í átt að miðbænum, heldur í átt að smábátahöfn sem liggur ögn utan við þéttasta borgarkjarnann, og fékk lögregla fjölda ábendinga frá borgurum er hún var á leið hennar þangað.

Lögregla fann kúna svo loks kl. 9:42 og tóku lögreglumenn þá ákvörðun um að aflífa hana með skammbyssu.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert