Franskur körfuknattleiksmaður hefur verið sektaður um 10 þúsund júan, jafnvirði um 170 þúsund íslenskra króna, fyrir að hafa ekki augun á kínverska fánanum þegar þjóðsöngurinn var leikinn fyrir leik í kínversku deildinni í körfubolta.
Samkvæmt frétt AFP er leikmönnum í kínversku deildinni skylt að horfa á fánann þegar kínverski þjóðsöngurinn er leikinn fyrir leiki. Myndir sýndu hins vegar að Guerschon Yabusele, sem leikur með Nanjing Tongxi Monkey King, laut höfði fyrir leik á föstudaginn.
Auk sektarinnar fékk Yabusele „alvarlega viðvörun“ fyrir að horfa ekki þangað sem hann átti að horfa, að því er fram kom í yfirlýsingu kínversku deildarinnar.
Former-#Celtics player Guerschon Yabusele fined 10,000 yuan ($1,422) by #CBA league after he failed to look at China's national flag during the pre-game playing of China's national Anthem. https://t.co/Ue6MQsoSpp pic.twitter.com/szxS07NUX2
— Global Times (@globaltimesnews) December 8, 2019
Yabusele, sem lék áður með Boston Celtics í NBA-deildinni í Bandaríkjunum, hefur ekki tjáð sig um málið.
Skiptar skoðanir eru um sektina á kínverska samfélagsmiðlinum Weibo. Einhverjir vilja að leikmaðurinn verði rekinn úr deildinni á stundinni á meðan aðrir benda á að hann hafi í raun ekki gert neitt af sér.