Merkel í sóttkví

Angela Merkel, kanslari Þýskalands.
Angela Merkel, kanslari Þýskalands. AFP

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, er komin í sóttkví. Merkel hitti lækni á föstudag, en hann reyndist síðar smitaður af kórónuveirunni.

Að sögn talsmanns Merkel fékk hún upplýsingarnar eftir sjónvarpsfundinn í dag, þar sem hún kynnti hertar aðgerðir vegna kórónuveirunnar í Þýskalandi.

Samkomubannið í Þýskalandi kveður á um að fleiri en tveir komi ekki saman á almannafæri. Það á ekki við innan heimila eða á vinnustöðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert