Allt lék á reiðiskjálfi

Allt lék á reiðiskjálfi í Beirút, höfuðborg Líbanons, þegar tvær stórar sprengingar urðu í borginni nú fyrir skömmu. Svartur reykjarmökkur steig til himins en eldar loga enn á vettvangi, við höfnina.

Sjúkraflutningamenn huga að særðum.
Sjúkraflutningamenn huga að særðum. AFP

Líbanskir fjölmiðlar greina frá því að sprengingarnar hafi verið svipaðar og öflugir jarðskjálftar.

Fjöldi fólks var fluttur særður á sjúkrahús en ekki er vitað um mannfall né heldur hvað olli sprengingunni.

Frá vettvangi í Beirút.
Frá vettvangi í Beirút. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert