Vilja að óbreyttir borgarar njóti verndar

„Í gegnum sendinefndirnar í Baku og Jerevan og verkefnið í …
„Í gegnum sendinefndirnar í Baku og Jerevan og verkefnið í Nagorno-Karabakh styður Alþjóðaráðið samfélög sem búa eftir víglínunni og á landamærum Armeníu og Aserbaídsjan“, segir í tilkynningu. Ljósmynd/Rauði krossinn

„Vegna ótta um að vopnuð átök brjótist út á milli Armeníu og [Aserbaídsjan] hefur Alþjóðaráð Rauða krossins (ICRC) hvatt deiluaðila til að virða alþjóðleg mannúðarlög og tryggja að óbreyttir borgarar njóti verndar,“ segir í tilkynningu frá Rauða krossinum á Íslandi.

„Alþjóðaráð Rauða krossins hvetur deiluaðila til að grípa til allra nauðsynlegra ráðstafana til að tryggja að líf óbreyttra borgara og innviðir séu virtir og verndaðir, í samræmi við skyldu þeirra til að virða grundvallarreglur alþjóðlegra mannúðarlaga.“

Um 100 manns hafa á síðustu dögum látið lífið í átökum milli Armen­íu og Aser­baí­dsjan um svæði sem bæði rík­in gera til­kall til, Nagorno Kara­bakh-hérað. Svæðið hef­ur verið í hönd­um armenskra aðskilnaðarsinna síðan stríði þar lauk árið 1994. 

„Við ítrekum að við aðstoðum og styðjum þá sem verða fyrir áhrifum af þessari stigmögnun átaka sem og að starfa sem hlutlaus milliliður,“ er haft eftir Martin Schüepp, fulltrúa Rauða krossins, í tilkynningu. „Við hvetjum aðila til að framfylgja meginreglum alþjóðlegra mannúðarlaga eins og hægt er.“

Frétt af mbl.is

Skjáskot úr myndbandi af átökunum.
Skjáskot úr myndbandi af átökunum. AFP

Styðja þá sem búa á víglínunni

Alþjóðaráð Rauða krossins hefur starfað á svæðinu síðan árið 1992 og unnið mannúðarstarf í tengslum við deiluna í Nagorno-Karabakh.

„Í gegnum sendinefndirnar í Baku og Jerevan og verkefnið í Nagorno-Karabakh styður Alþjóðaráðið samfélög sem búa meðfram víglínunni og á landamærum Armeníu og Aserbaídsjan. Alþjóðaráðið vinnur einnig að því að komast að örlögum týndra einstaklinga og hjálpa fjölskyldum þeirra, heimsækir fanga og starfar sem hlutlaus milliliður til að auðvelda flutning og heimflutning þeirra sem sleppt hefur verið úr haldi,“ segir í tilkynningu.

„Rauði krossinn á Íslandi hefur um árabil unnið náið með Rauða krossinum í Armeníu og á Kákasussvæðinu að uppbyggingu neyðarvarna í samstarfi við önnur Rauða kross félög með stuðningi Evrópusambandsins, og naut áður styrks frá utanríkisráðuneytinu. Sendifulltrúar Rauða krossins á Íslandi hafa séð um námskeið fyrir starfsfólk og sjálfboðaliða Rauða krossins í Armeníu, m.a. um sálrænan stuðning vegna áfalla og um samskipti og samstarf við fjölmiðla þegar hamfarir verða.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert