Verður tekin af lífi 12. janúar

Lisa Montgomery.
Lisa Montgomery. AFP

Bandarískur áfrýjunardómstóll hefur aflétt frestun á aftöku Lisu Montgomery, sem kyrkti þungaða konu, risti hana á kvið og tók úr henni ófætt barnið með eld­hús­hníf. Montgomery verður að óbreyttu fyrsta konan sem tekin verður af lífi af alríkisyfirvöldum í nærri 70 ár. 

Til stóð að taka Mont­gomery af lífi með ban­vænni sprautu í al­rík­is­fang­els­inu í Ter­re Haute, Indi­ana, í síðasta mánuði, en alríkisdómari frestaði aftökunni eftir að lögmenn hennar sýktust af kórónuveirunni. 

Bandaríska dómsmálaráðuneytið ákvað í kjölfarið að aftakan færi fram 12. janúar. BBC greinir frá því að lögmenn Montgomery munu fara þess á leit að niðurstaða áfrýjunardómstólsins verði endurskoðuð. 

Síðast var kona tekin af lífi af alríkisyfirvöldum Bandaríkjanna árið 1953, þegar Bonnie Heady var tekin af lífi í gasklefa. Aftökur alríkisyfirvalda höfðu ekki farið fram í 17 ár þegar Donald Trump Bandaríkjaforseti ákvað á síðasta ári að hefja þær að nýju. 

Bobbie Jo Stinn­ett var 23 ára göm­ul er Mont­gomery drap hana í des­em­ber 2004 en þær þekkt­ust ekki. Yfir eitt þúsund lög­menn hafa biðlað til al­rík­is­ins um að þyrma lífi Mont­gomery, sem er mjög veik á geði eft­ir hrotta­legt of­beldi í æsku sem og höfuðáverka sem hún hlaut sem barn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert