Reiði vegna „sófagate“

Ráðamenn í Brussel kunnu ekki að meta diplómatíska lítilsvirðingu í garð Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, er hún hugðist setjast niður til viðræðna við Erdogan Tyrklandsforseta í Ankara.

Erdogan bauð von der Leyen ekki til sætis í forsetahöllinni, aðeins voru þar stólar fyrir hann og Charles Michel, forseta leiðtogaráðs ESB. Von der Leyen ræskti sig til að gera vart við sig og myndskeið frá móttökunni sýndi að hún var slegin út af laginu. Á endanum settist hún í sófa lengra frá fyrirmennunum og gegnt tyrkneska utanríkisráðherranum sem er lægra settur í goggunarröð hins diplómatíska metorðastiga.

Gagnrýna Tyrki

Axarskaft Tyrkja, sem áður en varði var nefnt „sófagate“ í netheimum, átti sér stað þegar fulltrúar Brusselstjórnarinnar voru mættir til Ankara til að reyna að lappa upp á sambúðina við Tyrki, þrátt fyrir áhyggjur af réttindabrotum í Tyrklandi, ekki síst gagnvart konum.

ESB mislíkaði er Erdogan dró Tyrkja út úr alþjóðasáttmála um varnir gegn ofbeldi gagnvart konum og börnum. Eftir fundinn sagði von der Leyen að mannréttindi væru ekki samningsatriði.

„Ég hef þungar áhyggjur af úrsögn Tyrkja úr Istanbúlsáttmálanum. Hann snýst um að vernda konur og vernda börn gegn ofbeldi. Því var þessi ákvörðun kolröng.“ 

Tyrkir hafa í dag sakað Evrópusambandið um að bera ábyrgð á málinu og stólarnir hafi verið settir á sinn stað að tillögu ESB. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert