Nýr forseti SOS kjörinn

Dr. Dereje Wordofa, nýkjörinn forseti samtakanna.
Dr. Dereje Wordofa, nýkjörinn forseti samtakanna.

Nýr forseti alþjóðasamtakanna SOS var kjörinn í dag og var það dr. Dereje Wordofa frá Eþíópíu sem hlaut kjörið. Hann er fjórði forseti samtakanna frá stofnun þeirra árið 1949, þá hlaut Beáta Juvancz frá Ungverjalandi kjör sem varaforseti og hlutu þau bæði yfirgnæfandi kosningu, eða um 90% hvort.

Einnig var ný alþjóðastjórn kosin og samanstendur hún af 20 manns frá jafnmörgum aðildarfélögum. Kjör þeirra Wordofa og Juvancz markar nýtt upphaf alþjóðasamtakanna eftir að fyrrum valdhafar ákváðu að draga framboð sín til baka.

Þá ákvörðun tóku þau eftir að óháð rannsókn, sem SOS á Íslandi stóð fyrir ásamt SOS í fleiri löndum, leiddi í ljós valdníðslu þeirra og vanrækslu.

Beáta Juvancz, nýkjörinn varaforseti samtakanna.
Beáta Juvancz, nýkjörinn varaforseti samtakanna.

Heitir því að taka á mistökum fortíð samtakanna

„Ég heiti því að taka á mistökum í fortíð samtakanna í þeim tilgangi að efla barnavernd og færa verkefni SOS upp í hæsta gæðaflokk með gegnsæi og ábyrgð að leiðarljósi,“ segir Wardofa í tilkynningu en hann tekur við af Indverjanum Siddhartha Kaul sem gegndi embættinu sl. níu ár. 

„SOS Barnaþorpin á Íslandi bera fullt traust til Dereje og Beátu, að þau geti leitt samtökin inn í framtíðina með góðum stjórnarháttum og góðum árangri þegar kemur að því að hjálpa og styðja munaðarlaus og yfirgefin börn um allan heim,“ segir Ragnar Schram, framkvæmdastjóri SOS á Íslandi, í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert