„Megum aldrei unna okkur hvíldar“

Kona skýlir sér frá regninu undir regnhlíf í regnbogalitunum í …
Kona skýlir sér frá regninu undir regnhlíf í regnbogalitunum í grennd við minnisvarða í Osló. AFP

Samstarfsráðherrar Norðurlanda lögðu í gær blóm á þann stað sem voðaverk var framið á í höfuðborg Noregs á laugardagskvöld. 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra, er samstarfsráðherra Norðurlanda í ríkisstjórn Íslands.

Guðmundur Ingi leggur blóm á staðinn þar sem árásin átti …
Guðmundur Ingi leggur blóm á staðinn þar sem árásin átti sér stað. Ljósmynd/Aðsend

Vettvangur hryllilegrar árásar

Í þessu sambandi lýstu ráðherrarnir yfir eftirfarandi:

„Óslóarborg í Noregi hefur orðið vettvangur hryllilegrar árásar á saklaust fólk. Tveir létu lífið og margir særðust. Orð megna sín lítils gagnvart slíkum harmleik. Hugur okkar er hjá hinum látnu og sáru og öllum aðstandendum þeirra eftir þennan hræðilega atburð.

Norðurlönd taka sér stöðu með LGBTI-fólki og mótmæla hvers konar ofbeldi.

Á þessum sorgartímum viljum við minna á norræna samstöðu um mannréttindi, sameiginleg gildi og opin samfélög þar sem allir geta átt heima. Árásin sýnir að við megum aldrei unna okkur hvíldar í varðstöðunni um grundvallargildi okkar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert