23 létust í rútuslysi og 36 eru slasaðir

Að meðaltali deyja um tíu manns á dag í Marokkó.
Að meðaltali deyja um tíu manns á dag í Marokkó. AFP/Jorge Guerrero

23 manns hafa látist í rútuslysi skammt frá Casablanca í Marokkó í dag. 36 til viðbótar eru slasaðir samkvæmt bráðabirgðatölum.

Rútan valt í beygju á hraðbraut í Khouribja héraði í morgun. Hún var á milli Casablanca og Ait Attab landssvæðisins, nálægt bænum Beni Mellal.

Slasaðir voru fluttir á sjúkrahús í Khouribga en rannsókn er hafin á slysinu.

Að meðaltali deyja 3500 manns árlega og 12.000 slasast í bílslysum í Marokkó. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert