Kólerusmit greinist á Haítí

Stjórnvöld grípa til aðgerða vegna smitsins.
Stjórnvöld grípa til aðgerða vegna smitsins. Eduardo Munoz

Kólerusmit greindist í dag í hverfinu Cite Soleil í höfuðborginni Port-Au-Prince á Haítí og liggur fyrir grunur um fleiri smit, að því er stjórnvöld greindu frá í dag.

Í kringum tíu þúsund manns létu lífið í kólerufaraldri sem kom þar upp árið 2011 og lauk fyrir þremur árum síðan. Gripið hefur verið til aðgerða til þess að hindra útbreiðslu smita, þar á meðal til smitrakningar og sóttvarna.

Kólera náði útbreiðslu skömmu eftir að jarðskjálftann reið yfir í janúarmánuði árið 2010 og varð um 220 þúsund manns að bana.

Stuttur meðgöngutími

Kólera er bráð þarmasýking sem orsakast af staflaga bakteríunni Vibrio cholerae. Tíminn sem líður frá smiti þar til einkenni kóleru koma fram, svokallaður meðgöngutími sjúkdómsins, er skammur eða frá innan við einum degi til fimm daga.

Bakterían myndar iðraeitur sem verkar á slímhúð þarmanna og veldur auknu vatns- og klórjónaseyti í smáþörmum.

Hefur það í för með sér mikinn niðurgang sem getur á stuttum tíma leitt til alvarlegs vökvataps og dauða ef ekki er gripið fljótt til aðgerða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert