Bráðabirgðafjárlög samþykkt

Öld­unga­deild­in og full­trúa­deild­in, sem eru und­ir for­ystu hvors ­flokks­ins fyrir …
Öld­unga­deild­in og full­trúa­deild­in, sem eru und­ir for­ystu hvors ­flokks­ins fyrir sig, hafa verið í ákveðinni patt­stöðu þar sem lít­ill hóp­ur Re­públi­kana í full­trúa­deild þings­ins hef­ur hindrað all­ar bráðabirgðalausn­ir þar til nú. AFP/Mandel Ngan

Bráðabirgðafjárlög voru samþykkt á Bandaríkjaþingi aðeins nokkrum klukkustundum fyrir upphaf nýs fjárlagaárs. 

Allt stefndi í að ríkisstofnunum yrði lokað ef sátt næðist ekki á þinginu.

Það var Kevin McCart­hy, leiðtogi Re­públi­kana í full­trúa­deild, sem lagði fram frumvarpið en harðlínu­flokks­menn Repúblikana höfðu sum­ir hótað því að fjar­læga McCart­hy úr stöðu sinni sem leiðtogi þing­flokks­ins.

Bráðabirgðafjárlögin tryggðu starfsemi ríkisstofnanna í 45 daga, eða til 17. nóvember. 

Í fjárlögunum er ekki að finna stuðning Bandaríkjamanna við Úkraínumenn líkt og Joe Biden forseti hafði krafist.

Biden undirritaði fjárlögin og sagðist í yfirlýsingu fullviss um að McCart­hy myndi standa við loforð sitt um stuðninginn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert