Xi sagði Biden að hann myndi taka yfir Taívan

Biden og Xi í Kaliforníu í nóvember.
Biden og Xi í Kaliforníu í nóvember. AFP/Brendan Smialowski

Xi Jinping, forseti Kína, sagði blátt áfram við Joe Biden Bandaríkjaforseta á fundi þeirra í nóvember að kínversk stjórnvöld ætluðu sér að innlima Taívan í Kína að nýju.

Taív­an hef­ur búið yfir sjálfs­stjórn frá borg­ara­stríðinu árið 1949 og líta Taív­an­ar á landið sem full­valda ríki. Þeir hafa eig­in mynt, stjórn- og dóms­kerfi, en hafa aldrei lýst form­lega yfir sjálfstæði. Kín­verj­ar líta á eyj­una sem sitt landsvæði og hafa hótað því að taka yfir stjórn henn­ar.

Biden og Xi funduðu í Kaliforníu í nóvember, í von um að lægja öldurnar í stormasömu sambandi stórveldanna tveggja. Var þetta í fyrsta sinn í eitt ár sem starfsbræðurnir funduðu aug­liti til aug­litis og voru málefni Taívan meðal umræðuefna.

Hefur ekki ákveðið tímasetningu

Leiðtog­arn­ir tveir voru aft­ur á móti fjarri því að vera sam­mála um Taív­an á fundinum. Xi sagði Biden að hætta að vopna­væða eyj­una og að ekk­ert gæti stöðvað sam­ein­ingu henn­ar og Kína.

Fréttastofa NBC hefur nú eftir bandarískum embættismönnum sem voru á fundinum að Xi hafi einnig sagt við Biden að stjórnvöld í Peking hygðust sameina Taívan aftur við Kína og þá taka yfir Taívan á friðsamlegan máta, en ekki með valdi.

Þá sagði Xi að hann ætti eftir að ákveða tímasetningu fyrir yfirtökuna.

Þegar NBC leitaði viðbragða hjá þjóðaröryggisráði Bandaríkjanna neitaði talsmaður þeirra að tjá sig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert