Þýskaland „á réttri leið“ í átt að markmiðum

Þýski ráðherrann Robert Habeck á leið á ríkisstjórnarfund í Berlín …
Þýski ráðherrann Robert Habeck á leið á ríkisstjórnarfund í Berlín í gær. AFP/Ralf Hirschberger

Þýsk stjórnvöld segjast í fyrsta sinn vera á réttri leið í átt að loftslagsmarkmiðum sínum fyrir árið 2030.

Aukin notkun á endurnýjanlegri orku og veikari efnahagur, ásamt hærri orkukostnaði átti þátt í því að útblástur á koltvísýringi dróst saman um 10,1 prósent á milli ára, að sögn þýska efnahagsráðuneytisins.

Þýskaland, sem er stærsta efnahagsríki Evrópu, hefur sett sér það markmið að draga úr útblæstri koltvísýrings um 65% fyrir árið 2030 og að ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2045.

Góð tíðindi í skýrslu

Ný skýrsla frá umhverfisstofnun Þýskalands (UBA) sýnir að búist er við því að útblástur dragist saman um næstum 64% fyrir árið 2030 miðað við stöðuna í landinu árið 1990.

Í skýrslu frá árinu 2021 kom fram að reiknað væri með því að útblásturinn myndi aðeins dragast saman um 49%.

„Þessi spá sýnir í fyrsta sinn að við erum á réttri leið og að við getum náð loftslagsmarkmiðum okkar fyrir árið 2030,” sagði Robert Habeck, efnahagsráðherra Þýskalands, á blaðamannafundi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert